625.is

Ólafsfjörður í nærmynd

Flokkur: Umhverfið

29.01.2012 17:27

Myndir af skíðafólki og bænum

Við kíktum upp í fjalla í gær og tókum nokkrar myndir af skíðafólki. Tókum einnig myndir yfir bæinn.
Sjá í myndaalbúmi.

Hvítur er fjörðurinn

26.01.2012 08:13

Skóla- og frístundaakstur fellur niður í dag

Skóla- og frístundaakstur fellur niður í dag, fimmtudaginn 26. janúar er fram kemur á heimasíðu Fjallabyggðar. Enda er þetta spurning hvort nokkur eigi að vera að ferðast á þessum tíma. Meðfylgjandi mynd er af vef vegagerðarinnar og sýnir færð á vegum um landið.

08.11.2011 20:56

Snjóflóðavarnagarðurinn enn í sumarbúning

Snjóflóðavarnargarðurinn er enn í sumarbúning. Hann er enn vel grænn, þó annað umhverfi í kring sé komið í haust og vetrar liti.

04.11.2011 12:58

Svör við snjómoksturspurningum

Á miðvikudaginn kom frétt hér á 625.is með fyrirsögnina "Bærinn ófær fram eftir degi"
Ármann Viðar Sigurðsson, deildarstjóri Tæknideildar Fjallabyggðar hefur svarað þeim spurningum sem varpað var fram og skýrt málið, þökkum við honum fyrir svörin:
---

Þar sem snjómokstur í Fjallabyggð heyrir undir mig þá ætla ég að svara þeim spurningum sem varpað er fram hér. 1. Engar breytingar hafa verið gerðar á snjómokstrusplani. 2. Sömu aðilar og mokuðu síðasta vetur, þ.e. eftir útboð, moka núna. 3. Engin tæki voru biluð umræddan dag. 4. Fyrsta vél fór af stað kl 6:00 og tvær fóru kl:6:30 5. Engar sparnaðaraðgerðir eru viðhafðar varðandi snjómokstur.
Þess má geta að mjög erfiðar aðstæður voru umræddan dag þar sem snjórinn var mjög blautur og illmokanlegur. Það hefði verið hægt að stinga í gegnum allar götur og opna þannig fyrr. Það hefði þýtt að fáir hefðu komist út á götur bæjarins þar sem ruðningur hefði lokað fyrir öll stæði. Í framhaldi vil ég benda á að ef einhver vill koma athugasemdum á framfæri er varða snjómokstur, þá vinsamlega hafið samband við mig. Ármann Viðar Sigurðsson Deildarstjóri tæknideildar 8641491

Ármann Viðar Sigurðsson (armann@fjallabyggd.is)

28.09.2011 12:45

Hjólabrautir

Byrjað er á gerð hjólabrauta í Ólafsfirði, áhugasamir hjólagarpar höfðu frumkvæði að því að fá leyfi fyrir gerð hjólabrautar á svo kölluðu "Frímerki" í Ólafsfirði. Eftir grenndarkynningu þar sem engar athugasemdir voru gerðar við framkvæmdina var ákveðið að hefjast handa, hólar verða gerðir úr timburkurli sem til fellur úr því timbri sem kemur á gámsvæðið og ekki verður nýtt í moltugerð. Verkefnið er samvinnuverkefni hjólakappa frá báðum stöðum, ákveðið var að byrja á þessari braut og stefna svo á uppbyggingu á Siglufirði, þar er líka horft til skíðasvæðisins um að byggja þar upp s.k. Downhill brautir. Það eru brautir sem gjarnan eru byggðar á skíðasvæðum og eru nokkurskonar brunbrautir fyrir hjól. Sambærilegar brautir eru í Hlíðarfjalli og í Skálafelli. Myndir komnar í myndaalbúmið.

Texti aðsendur

09.09.2011 12:55

Margir þættir á N4 frá Ólafsfirði

N4 hafa verið sérstaklega duglegir undanfarið að fjalla um málefni Fjallabyggðar á síðustu mánuðum, eru þar a.m.k. þrír þættir frá Ólafsfirði. Þessi þættir eru:

Hótel Brimnes Ólafsfirði

Golfklúbbur Ólafsfjarðar

Menntaskólinn á Tröllaskaga

Annars hvetjum við fólk að fylgjast með áhugaverðum þáttum á N4, enda eiga þeir mikinn heiður skilinn fyrir frábært starf í að miðla efni um norðurland.

05.08.2011 11:13

Framkvæmdir í Ólafsfirði

nú eru komnar myndir í myndaalbúmið frá nokkrum framkvæmdum sem hafa verið í gangi undanfarna daga og í sumar.

Verið er að brjóta upp gangstéttina fyrir utan gamla pósthúsið og "Kaupfélagið"

26.06.2011 23:47

Gönguvika

Á föstudaginn hófst gönguvika á vegum Ferðatrölla (samtök ferðaþjónustuaðila við Eyjafjörð).
Ekki er þó að örvænta því það á eftir að fara margar ferðir alla vikuna til 3. júlí. Áhugasamir geta kynnt sér málið á heimasíðu Gönguviku:

09.06.2011 07:42

Hvar er sumarið?

Í morgun kl. 7:30 var ansi kuldalegt um að litast hér í Ólafsfirði, grá fjöll og hitastig rétt fyrir ofan frostmark (0,8 gráður).

Eins og sést á þessari mynd sem var tekin kl. 7:30 í morgun, þá er búið að grána vel niður í fjöll.

17.05.2011 15:00

Hreinsunarátak

Fréttatilkynning

Bæjarstjórn Fjallabyggðar og Íslenska Gámafélagið ehf. hafa tekið höndum saman um snyrta og fegra umhverfi sveitafélagsins. Ætlunin er að Fjallabyggð verði ætíð til fyrirmyndar í snyrtimennsku og taki sérstaklega  vel á móti gestum sínum í sumar.

Að því tilefni verður staðið fyrir hreinsunarátaki í sveitafélaginu með íbúum og fyrirtækjum.

Hreinsunarátak  21. maí  (frestast til 28. maí)

Hreinsunarátak með íbúum og fyrirtækjum í Fjallabyggð verður laugardaginn 21. maí og hefst formlega kl. 10.  Á föstudegi verða settir út brotajárnsgámar, merktir Íslenska Gámafélaginu, við gámasvæðin. Fyrirtæki get óskað eftir því við gámafélagið að fá gáma undir meiriháttar magn af úrgangi.

Gámar undir annarskonar úrgang verða staðsettir á opnum svæðum í þeim hverfum sem fjærst eru gámasvæðunum, á Siglufirði verða gámar norðan Eyrarflatar og á malarvellinum en í Ólafsfirði á túni norðan við Brimnes hótel. Gámasvæðin verða opin frá 10 - 16, Íslenska Gámafélagið verður með opið hús í Seyruhúsinu þar sem íbúar geta skoðað jarðgerðavél sem smíðuð var hjá SR á Siglufirð. Þar er framleidd molta sem er  tilbúin  til notkunar.

Kl. 16 á laugardegi verður boðið uppá grillaðar pylsur í boði Fjallabyggðar og Íslenska Gámafélagsins.

Í Ólafsfirði verður grillað við Tjarnarborg en á Ráðhústorgi á Siglufirði.

Bæjarstjórn hvetur fyrirtæki og almenning að taka til hendinni og gera bæina okkar hreina og fína, stefnum á að Fjallabyggð verði snyrtilegasta sveitafélag á landinu.

Lagt er til að hverfi eða götur  taki sig saman og vinni að hreinsun á sínu svæði og komi svo í grill á eftir.

Garðaúrgangur og múrbrot

Garðaúrgangur

Siglufjörður.      Við Öldubrjótinn hefur verið útbúið svæði til að losa garðaúrgang.

Ólafsfjörður.     Í gömlu grjótnámunni við Múlaveg er svæði til að losa garðúrgang.

Vinsamlegast farið eftir leiðbeiningum á staðnum og losið aðeins garðaúrganga á svæðið, plast og annan úrgang skal losa á gámasvæðin. 
Lóðarhafar skulu koma sínum garðaúrgangi á losunarstað.

Múrbrot

Vinsamlegast hafið samband við bæjarverkstjóra eða umhverfisfulltrúa varðandi losun á múrbrotum og steypuafgöngum.

Fyrir hönd bæjarstjórnar.

Bæjarstjóri Fjallabyggðar og umhverfisfulltrúi

07.03.2011 12:31

Skógræktin á Siglufirði

Á vefnum www.siglo.is er sagt frá skógræktinni á Siglufirði og hversu mikil náttúruperla hún er. Myndir er hægt að sjá hér: siglo.is.

Fossinn í skógræktinni. Mynd af www.siglo.is (mynd: H.S)

13.01.2011 17:48

Snjór í Ólafsfirði

Miðvikudaginn 12. janúar fór ljósmyndari 625.is um bæinn og tók myndir af þeim mikla snjó sem hefur safnast í bæinn undarfarna daga.
Sjá myndir í myndaalbúmi.

Mokað á gatnamótum Aðalgötu/Ólafsvegar/Ægisbyggðar

10.01.2011 22:07

Snjómokstur boðinn út

Tæknideild Fjallabyggðar hefur óskað eftir tilboðum í snjómokstur og hálkuvarnir í Fjallabyggð fyrir árið 2011 - 2013
Verkefnið felst í hreinsun á snjó og krapa af götum, gangstígum og bifreiðastæðum ásamt snjómokstri og akstri, auk sandburðar eða saltdreifingar á götur, gangstíga og bifreiðastæði í Fjallabyggð.

Útboðsgögn verða afhent í ráðhúsi Fjallabyggðar að Gránugötu 24, Siglufirði og bæjarskrifstofum Ólafsvegi 4, Ólafsfirði frá kl.10:00 þann 10. janúar 2011.

Tilboði skal skila í ráðhús Fjallabyggðar 3. hæð á Siglufirði þann 21. janúar 2011 eigi síðar en kl 13:00 og verða þau þá opnuð í fundarsal ráðhúss á 2. hæð að viðstöddum bjóðendum, eða fulltrúum þeirra, sem mættir verða.

Sorphirða gekk ekki vel fyrr í vetur þegar ekki var búið að moka bæinn.

10.01.2011 21:42

Ólafsfjarðarmúli lokaður

Á vef Vegagerðarinnar er sagt frá því að Ólafsfjarðarmúli sé lokaður vegna snjóflóðahættu. Mikil úrkoma hefur verið undarinn sólarhring og snjórinn mjög blautur. Færð í bænum fer versnandi.

07.01.2011 22:09

Ólafsfjarðarhöfn á kaf

Það hefur sjálfsagt ekki farið fram hjá neinum undanfarna tvo daga að veðrið hefur látið vita af sér. Magnús Sveinsson tók myndband af Ólafsfjarðarhöfn og gékk sjórinn vel yfir bryggjur. Sjá myndbandið hér: http://vimeo.com/18545445
Flettingar í dag: 379
Gestir í dag: 123
Flettingar í gær: 1228
Gestir í gær: 347
Samtals flettingar: 800596
Samtals gestir: 160842
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 13:36:25

Vafraðu um

Höfundur síðu

Nafn:

Gísli Rúnar Gylfason

Farsími:

863-4369

Heimilisfang:

Hlíðarvegur 8

Staðsetning:

Ólafsfjörður - hvað annað!

Um:

áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.

Tenglar