|
625.is Ólafsfjörður í nærmynd |
|
Flokkur: Menning14.01.2012 22:26Þorrablót KKSNú er um að gera að taka daginn frá því hið árlega KKS Þorrablót verður í Íþróttahúsinu á Siglufirði laugardaginn 18. febrúar 2012. Þetta er fimmta skiptið sem KKS þorrablót er haldið og hefur það heppnast mjög vel, maturinn einstaklega góður, sem og skemmtiatriðin. Nánari upplýsingar verða birtar fljótlega á heimasíðu KKS, www.kks.is Skrifað af Gísli Rúnar 06.01.2012 15:34Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2012Menningarnefnd hefur valið bæjarlistamann Fjallabyggðar 2012. Fyrir valinu varð Guðrún Þórisdóttir (Garún) myndlistarkona í Ólafsfirði. Þrjár tilnefningar bárust nefndinni, Guðrún Þórisdóttir, hljómsveitin Roðlaust og beinlaust og Kirkjukór Ólafsfjarðar. Guðrún útskrifaðist úr Myndlistaskóla Akureyrar árið 1994 í fagurlistadeild og hefur unnið óslitið að list sinni síðan. Útnefning bæjarlistamanns fer fram föstudaginn 20. janúar kl. 17.00 og verður nánar auglýst í Tunnunni. Garún Frétt og mynd af vef Fjallabyggðar, www.fjallabyggd.is Skrifað af Gísli Rúnar 31.12.2011 00:09Brenna og flugeldasýningÁramóta brennan verður á sínum stað vestan við Ósinn kl. 20:00 á gamlárskvöld. Björgunarsveitin Tindur stendur svo fyrir glæsilegri flugeldasýningu kl. 20:30 með stuðningi frá Fjallabyggð og fyrirtækjum í bænum. Flugeldasalan verður opin frá 11-14 á gamlársdag. Gleðilegt nýtt ár og munið að fara varlega með flugeldana. :-) ![]() Skrifað af Gísli Rúnar 22.12.2011 23:01Jólamót KF - Innanhúsmót í knattspyrnuJólamót KF verður haldið föstudaginn 30.desember í Íþróttamiðstöð Fjallabyggðar á Siglufirði Hvert lið má vera skipað allt að 7 leikmönnum, 5 inná í einu keppt í 2 til 3 riðlum (fer eftir fjölda liða). Eftir riðlakeppnina verður síðan útsláttarkeppni þar sem besta liðið stendur uppi sem sigurvegari. Keppt verður bæði í karla og kvennaflokki (ef næg þáttaka fæst... koma svo stelpur) Keppnisgjald er 15.000 kr. og gildir það einnig sem aðgöngumiði á herrakvöld KF um kvöldið, þar verðlaun verða veitt fyrir keppni dagsins. Leikjaniðurröðun kemur á heimasíðu félagsins fyrir klukkan 21:00, fimmtudaginn 29. desember. Spilað er eftir innanhúsreglum KSÍ. Vegleg verðlaun eru veitt fyrir fyrstu þrjú sætin í mótinu. Nánari upplýsingar og skráning hjá Brynjari 869-8483 og Hlynur 8987093 Herrakvöldið er haldið að Hóli á Siglufirði og hefst kl.20:00. Miðaverð er kr.2.000. Á Herrakvöldinu verður boðið uppá léttar veitingar, fordrykkur og snittur að hætti Kobba. Skrifað af Gísli Rúnar 14.12.2011 11:00Einsöngstónleikarnir kl. 20:30Einsöngstónleikarnir Gumma Fjólu verða í kvöld í Ólafsfjarðarkirkju kl. 20:30 (ekki 22:30 - sem var innsláttarvilla í fyrri frétt). Beðist er velviðringar á þessu. Góða skemmtun í kvöld. Skrifað af Gísli Rúnar 12.12.2011 12:41Einsöngstónleikar Gumma FjóluGuðmundur Ólafsson verður með einsöngstónleika í Ólafsfjarðarkirkju miðvikudaginn 14. desember nk. 20:30. (ekki 22:30 eins og auglýst var fyrst) Sigursveinn Magnússon mun sjá um undirleik. Flutt verða íslensk og erlend sönglög, óperuaríur o.fl. Aðgangseyrir kr. 2.000.- (ekki tekið við kortum). Guðmundur og Sigursveinn í Tenórnum. Skrifað af Gísli Rúnar 09.12.2011 07:19Tónleikar í boði SparisjóðannaÞétt saman-Sterk saman Tónleikar í boði Sparisjóðanna í Fjallabyggð fyrir nemendur Grunnskóla Fjallabyggðar í sal Rauðku. Sunnudaginn 11. desember 2011 Yngri deild kl. 15:00. Hjálmar, Baggalútur og Memfismafían (Gilli Gill, Ávaxtakarfan) Þorsteinn Guðmundsson Kók og prins á leiðinni út Eldri deild kl. 17:00 Hjálmar, Baggalútur og Memfismafían(Gilli Gill,Ávaxtakarfan) Þorsteinn Guðmundsson Kók og prins á leiðinni út Rútuferðir verða farnar frá Íþróttamiðstöðinni á Ólafsfirði kl. 14:30 fyrir yngri deild og kl. 16:30 fyrir eldri deild. Ferðir til baka verða eftir hvora tónleika. Ath. það er frítt á tónleikanna. Skrifað af Gísli Rúnar 06.12.2011 22:08Sýning nemenda MenntaskólansHaustsýning nemenda Menntaskólans á Tröllaskaga verður haldin í skólanum laugardaginn 10. desember kl. 13:00 - 16:00. Á sýningunni verða málverk, ljósmyndir ásamt verkefnum um afþreyingu á Tröllaskaga.
Nemendur verða á staðnum til að ræða verk sín.
Sýningin er aðgengileg í skólanum á opnunartíma til 17. desember en þá er útskrift skólans. Heimild: www.mtr.is Skrifað af Gísli Rúnar 22.11.2011 08:17Breytingar á dagsetningum á aðventunni í ÓlafsfirðiÁkveðið hefur verið að fresta viðkomandi atburðum:
verða þeir á eftirfarandi tímum:
Áhugasamir hafi samband við Val í síma 844 0220 - valur@fjallabyggd.is ---
Skrifað af Gísli Rúnar 16.11.2011 21:42Dagur íslenskrar tunguÍ tilefni af degi íslenskrar tungu heldu nemendur Grunnskólans upp á daginn með skemmtilegri dagskrá í hádeginu í dag. Foreldrum var boðið að koma og fylgjast með. Nemendur 1.-6. bekkjar í lásu upp og fóru með ýmis ljóð og texta. Fyrr um morguninn hafði 6. bekkur farið í heimsókn á leikskólann og lesið fyrir krakkan þar. 7. bekkur fór yfir til Siglufjarðar þar sem hann sameinaðist með 7. bekk á Siglufirði í dagskrá þar sem farið var á Síldarminjasafnið og bókasafn Fjallabyggðar á Siglufirði. Myndir komnar í myndaalbúmið. Skrifað af Gísli Rúnar 15.11.2011 21:44Aðventuhátíð 2011nú þegar styttist í aðventuna er menningarfulltrúi að safna saman þeim viðburðum sem verða á dagskrá yfir hátíðina. Eru þeir sem ætla að standa fyrir einhverjum viðburði vinsamlegast beðnir að hafa samband við Karítas. Kveikt verður jólatrénu í Ólafsfirði laugardaginn 26. nóvember kl. 16:00 og á Siglufirði laugardaginn laugardaginn 3. desember kl. 16:00. Jólamarkaðurinn verður í og við Tjarnarborg 26. nóvember kl. 14:00-18:00 og 10. desember kl. 14:00-17:00. Minnum á að panta þarf jólahúsin tímanlega. Söluaðilar hafi samband við Karítas, karitas@fjallabyggd.is eða í síma 464-9200 / 464-9100 Skrifað af Gísli Rúnar 15.11.2011 00:23Laufabrauðssagan625.is fékk ábendingu um skemmtilega frásögn um sögu um laufabrauðsbakstur ´"Ólafsfirðinga" Eins og margir þekkja er það oft stór og mikil athöfn þegar fjölskyldan kemur saman og baka laufabrauð. Á heimasíðu Þjóðminjasafnsins er saga laufabrauðsins gerð skil og að auki er að finna skemmtilega frásögn um slíka fjölskylduhefð. --- LaufabrauðÍ hugum margra er laufabrauðið eitt af séreinkennum íslensks jólahalds. Elsta heimild sem til er um laufabrauð á Íslandi er frá fyrri hluta 18. aldar þar sem laufabrauðinu er lýst sem sælgæti Íslendinga. Talið er að upprunalega hafi laufabrauðið aðallega verið á borðum þeirra sem meira máttu sín en hafi ekki komið á hátíðarborð almennings fyrr en á 19. öld. Erfitt gat verið að fá hráefni í brauðið, sérstaklega á tímum einokunarverslunarinnar, og var því brauð og annað kornmeti aðeins á borðum almennings til hátíðabrigða. Brugðið var á það ráð að baka örþunnt brauð fyrir jólin svo allir gætu fengið að smakka eins og segir í kvæðinu:
En hér mun líklega hafa verið átt við laufabrauðið. Til þess að auka við hátíðleikann við brauðátið voru skornar fallegar myndir út í laufabrauðið. Í lok 19. aldar var það þó aðallega á Norðurlandi sem laufabrauð var hátíðabrauð almennings og var það ekki fyrr en síðar að það breiddist um landið. Þar var einnig sá siður að fólk kom saman og skar út laufabrauð á aðventunni. Hér má lesa um eitt slíkt dæmi:
Skrifað af Gísli Rúnar 12.11.2011 21:38Myndir frá tónleikum RótarýklúbbsinsEins og við sögðum frá hér í vikunni þá stóð Rótarýklúbburinn fyrir tónleikum sl. fimmtudag. Magnús Sveins tók myndir og er hægt að skoða þær hér. Skrifað af Gísli Rúnar 08.11.2011 12:49Miðasala á konukvöld KFMiðasala á KONUKVÖLD fer fram í kvöld (8. nóvember) milli 18-21 í Vallarhúsinnu í Ólafsfirði (UÍÓ) og í Kjólakistunni á Siglufirði Stjórn KF Skrifað af Gísli Rúnar 02.11.2011 21:03Djúpið sýnt í Bátahúsi SíldarminjasafnsinsNæstkomandi sunnudag verður leikritið Djúpið sýnt í Bátahúsi Síldarminjasafnsins. Um er að ræða einleik stórleikarans Ingvars E. Sigurðsonar, en verkið var skrifað með hann í huga. Jón Atli Jónasson, höfundur verksins, þreytir hér frumraun sína sem leikstjóri. Á vefsíðunni midi.is er lýsing á verkinu: ,,Bátur heldur úr höfn rétt fyrir dögun. Menn ýmist fleygja sér í koju eða halda sér vakandi á sígarettum, kaffi og veltingi. Enginn hefur minnsta grun um hvað er í vændum. Hér er komið nýtt, íslenskt verk sem leikhús um alla Evrópu eru nú í óða önn að tryggja sér sýningarréttinn á. Djúpið er frásögn úr íslenskum veruleika sem lætur engan ósnortinn. Þetta er óður til allra þeirra fjölmörgu, íslensku sjómanna sem í gegnum aldirnar hafa haldið á djúpið." Forsala aðgöngumiða fer fram í Síldarminjasafninu og miðapantanir í síma 467-1604. Miðinn kostar 3.400 krónur. Sýningin fer fram kl 20 sunnudaginn 6. nóvember. Skrifað af Gísli Rúnar Flettingar í dag: 379 Gestir í dag: 123 Flettingar í gær: 1228 Gestir í gær: 347 Samtals flettingar: 800596 Samtals gestir: 160842 Tölur uppfærðar: 8.2.2012 13:36:25 |
Vafraðu umHöfundur síðu Nafn: Gísli Rúnar GylfasonFarsími: 863-4369Tölvupóstfang: gislirunar4@gmail.comHeimilisfang: Hlíðarvegur 8Staðsetning: Ólafsfjörður - hvað annað!Um: áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.TenglarEldra efni
|