|
625.is Ólafsfjörður í nærmynd |
|
Flokkur: Íþróttir05.02.2012 22:08Námskeið í skíðagönguFimmtudaginn 9.febrúar hefst námskeið í skíðagöngu fyrir fullorðna hjá skíðafélagi Ólafsfjarðar. Farið verður yfir undirstöðuatriðin í skíðagöngu og mun Kristján Hauksson leiðbeina. Námskeiðið hefst eins og fyrr segir 9.febrúar kl. 20:00 og verður í 5-6 skipti, allt eftir þörfum og áhuga. Möguleiki er að fá leigð skíði, skó og stafi á vægu verði en námskeiðið sjálft kostar 4.000 kr. Skráning og nánari upplýsingar fást hjá Kristjáni í síma 892-0774 eða netf. krihau@simnet.is Skrifað af Gísli Rúnar 01.02.2012 12:55Námskeið í hestanuddiHelgina 25. - 26. febrúar næstkomandi á Siglufirði, ef næg þátttaka fæst. Námskeiðið stendur yfir frá kl. 9 -16 á laugardeginum, með bóklegum tíma og byrjar kl. 10 á sunnudeginum með verklegum tíma. Námskeiðið kostar kr. 19.200 og lágmarksfjöldi eru 6 nemendur. Greiða þarf staðfestingargjald kr. 6.000 við skráningu. Skráning og allar upplýsingar eru í síma 861-6727 eða í hestanudd@hestanudd.net fyrir sunnudaginn 19. febrúar. Skrifað af Gísli Rúnar 31.01.2012 23:551X2 Getraunaleikur KF í ÓlafsfirðiGetraunaleikur Knattspyrnufélags Fjallabyggðar er að byrja á laugardaginn (4.feb). Nú er um að gera að taka þátt í skemmtilegum leik. Vinningar veittir fyrir 3 efstu sætin í riðlinum. Liðaskráningar á kf@kfbolti.is eða í síma 865 2325 (Heiðar) eða 660 4760 (Þorri). Þátttökugjald er 5.000 kr. á hvert lið. Skrifstofan verður opin milli kl.12-14 á laugardögum. Frekari upplýsingar um leikinn má finna hér: http://kfbolti.is/frettir/getraunaleikurinn_hefst_aftur_laugardaginn_4feb Skrifað af Gísli Rúnar 31.01.2012 23:54KF réð ekki við KA-menn á NorðurlandsmótinuKF og KA áttust við á Norðurlandsmótinu s.l. laugardag en keppt var í Boganum á Akureyri. Áhorfendur voru 65 og gerði Þórður Birgisson þrennu fyrir KF. Leikskýrslu KSÍ má sjáhér. KF tefldi fram þremur Ungverjum sem eru til reynslu hjá félaginu. Fyrsta markið kom eftir aukaspyrnu af vinstri kanti, boltinn var sendur inná teiginn þar sem Elmar Dan var fyrstur á boltann og kom honum í netið. Seinni hálfleikur byrjaði af sama krafti og fyrri hálfleikur. KF menn fengu víti á 49. mín er leikmaður þeirra var að skjóta að marki þegar á honum var brotið. Þórður Birgisson tók vítið, sendi Sandor í rangt horn og skoraði örugglega. Áfram hélt baráttan og KA með yfirhöndina. Á 81. mín átti Gunnar Valur góðan skalla að marki en naumlega framhjá. Stuttu síðar fékk KA aukaspyrnu rétt fyrir utan teig, Jóhann Helgason þrumaði þá boltanum í markmannshornið og í netinu lá hann. Glæsilegt mark hjá Jóhanni. Í uppbótartíma gerðust hlutirnir hratt, fyrst skoraði Hallgrímur Mar glæsilegt mark með föstu skoti uppí samskeytinn. KF menn gáfust ekki upp og fengu víti stuttu síðar en þá varði Jóhann Helgason með hendi innan teigs og fékk gult spjald fyrir. Jóhann hafði fengið spjald fyrr í leiknum fyrir kjaft og var hann því sendur í bað. Stuttu síðar kláraði Bjarki Baldvinsson vel færi inná markteig og gulltryggði sigur KA manna. Mikil barátta var í leikmönnum allan leikinn en KA menn fengu fimm gul spjöld fyrir kjaft en KF tvö. KF 3-5 KA Skrifað af Gísli Rúnar 19.01.2012 23:25Snjór um alla veröld- frítt í fjalliðSkíðafélags Ólafsfjarðra býður öllum frítt á skíðasvæðið Tindaöxl sunnudaginn 22. janúar í tilefni af verkefninu "snjór um víða veröld". Hvetjum fjölskyldur til að mæta saman á skíðinmeð góða skapið, og gera sér góðan dag. Skrifað af Gísli Rúnar 09.01.2012 23:32Zumba námskeiðZumba Fitness námskeið verður haldið í Ólafsfirði helgina 20.-22. janúar næstkomandi. Einföld spor, mikil brennsla, skemmtileg tónlist og frábær félagsskapur. Námskeiðið verður haldið í íþróttahúsinu. Tímarnir verða samkvæmt eftirfarandi stundarskrá Föstudaginn 20. Janúar kl: 18:00-19:00 Laugardaginn 21. Janúar kl: 10:00-11:00 Sunnudaginn 22. Janúar kl: 10:00-11:00 Verð fyrir námskeiðið er 4.000.- öll helgin Frekari upplýsingar og skráning í síma 8689390 eða í Email zumba-loa@visir.is Skrifað af Gísli Rúnar 05.01.2012 23:55Norðurland?smót í fótbolta að hefjastHið árlega Norðurlandsmót sem nú er kallað Hleðslumótið hefst á föstudag. Níu lið taka þátt í mótinu í ár og er þeim skipt í tvo riðla en líkt og áður fara allir leikirnir fram í Boganum. KF er í riðli með Fjarðabyggð, KA, Magna og Þór 2. Fyrsti leikur liðsins fer einmitt fram nú á Sunnudag þegar okkar strákar leika á móti Fjarðabyggð í Boganum klukkan 17:00. Skrifað af Gísli Rúnar 31.12.2011 00:04Sævar Birgisson íþróttamaður Fjallabyggðar 2011Skíðamaðurinn Sævar Birgisson var kjörinn íþróttamaður Fjallabyggðar árið 2011 við hátíðlega athöfn á Allanum á Siglufirði miðvikudaginn 28. desember sl. Sævar æfir og keppir undir merkjum Skíðafélags Ólafsfjarðar. 625.is óskar Sævari sem og öllum þeim sem tilnefndir voru innilega til hamingju með árangur sinn. Sævar Birgisson (tengdasonur Gullu og Steina Sínu) Skrifað af Gísli Rúnar 22.12.2011 23:01Jólamót KF - Innanhúsmót í knattspyrnuJólamót KF verður haldið föstudaginn 30.desember í Íþróttamiðstöð Fjallabyggðar á Siglufirði Hvert lið má vera skipað allt að 7 leikmönnum, 5 inná í einu keppt í 2 til 3 riðlum (fer eftir fjölda liða). Eftir riðlakeppnina verður síðan útsláttarkeppni þar sem besta liðið stendur uppi sem sigurvegari. Keppt verður bæði í karla og kvennaflokki (ef næg þáttaka fæst... koma svo stelpur) Keppnisgjald er 15.000 kr. og gildir það einnig sem aðgöngumiði á herrakvöld KF um kvöldið, þar verðlaun verða veitt fyrir keppni dagsins. Leikjaniðurröðun kemur á heimasíðu félagsins fyrir klukkan 21:00, fimmtudaginn 29. desember. Spilað er eftir innanhúsreglum KSÍ. Vegleg verðlaun eru veitt fyrir fyrstu þrjú sætin í mótinu. Nánari upplýsingar og skráning hjá Brynjari 869-8483 og Hlynur 8987093 Herrakvöldið er haldið að Hóli á Siglufirði og hefst kl.20:00. Miðaverð er kr.2.000. Á Herrakvöldinu verður boðið uppá léttar veitingar, fordrykkur og snittur að hætti Kobba. Skrifað af Gísli Rúnar 09.12.2011 17:02Skiptimarkaður með skíðavörurSkíðafélag Ólafsfjarðar og Skíðafélag Siglufjarðar ætla að prufa að standa fyrir markaði þar sem fólk getur komið með skíðabúnað sem ekki er þörf fyrir á heimilinu og reynt að losa sig við fyrir einhvern pening og einnig að kaupa búnað á góðu verði. Hugmyndin er að fólk mæti á svæðið og sjái sjálft um að reyna að díla með búnaðinn. Markaðurinn verður í Eining/Iðju húsinu á Siglufirði sunnudaginn 11. desember. Við hvetjum fólk eindregið til að mæta og reyna að gera góð kaup. Þetta er hugsað bæði fyrir alpagreinar- og göngubúnað, fullorðinsgræjur og barnagræjur. Skrifað af Gísli Rúnar 04.12.2011 22:18Námskeið í skíðagönguFyrirhugað er að halda námskeið í skíðagöngu ef næg þátttaka næst. Námskeiðið er ætlað fullorðnum og hentar bæði byrjendum sem og lengra komnum. Farið verður yfir undirstöðuatriði í skíðagöngu og verður Sævar Birgisson leiðbeinandi. Námskeiðið fer fram við Menntaskólann á Tröllaskaga og hefst þriðjudaginn 6. desember kl. 17:30. Námskeiðið verður í 6 skipti og kostar 4.000 kr.Skráningu lýkur kl. 13:00, þriðjudaginn 6. desember. Nánari upplýsingar og skráning er hjá Sævari í síma: 846-7192 eða netfang: saevar.birgisson.10@bifrost.isSkrifað af Gísli Rúnar 30.11.2011 21:32Samstarfssamningur milli skíðafélaganna í FjallabyggðÍ dag 30. nóvember var undirritaður samstarfssamningur milli skíðafélaganna í Fjallabyggð, Skíðafélags Siglufjarðar Skíðaborg (SSS) og Skíðafélags Ólafsfjarðar (SÓ) um þjálfun yngri og eldri hóps í alpagreinum. Æfingar munu fara fram í báðum byggðarlögum. Iðkenndur munu þó áfram keppa í nafni síns félags. Snorri Páll Guðbjörnsson mun sjá um þjálfun yngri hóps og Andrés Stefánsson mun sjá um þjálfun eldri hóps. Snorri Páll er með 5 ára reynslu sem þjálfari yngri hópa hjá SKA. Snorri hefur tvisvar sinnum keppt á hemsmeistaramóti unglinga og einu sinni á Ólympíuleikum Æskunnar. Hann var í öllum landsliðum Íslands fyrir utan A-landsliðið. Andrés er með yfir 30 ára reynslu sem þjálfari yngri og eldri hópa hjá SSS og hefur hann öll þau réttindi sem krafist er af skíðaþjálfurum. Hann hefur einnig keppt á helstu mótum í alpagreinum hér á landi. Skíðafélögin vænta þess að samstarfið verði farsælt og að það muni stuðla að því að styrkja iðkenndur félaganna bæði keppnislega og félagslega. Í stjórn SSS eru Baldvin Kárason formaður, Rúnar Marteinsson, Þorgeir Bjarnason, Brynja Ingunn Hafsteinsdóttir, Sigurbjörg Gunnólfsdóttir, Tómas Einarsson og Ásmundur Einarsson. Í stjórn SÓ eru Sigurpáll Gunnarsson formaður, Jón Valgeir Baldursson, Kristján Hauksson, Guðrún Unnsteinsdóttir, Daníel Páll Víkingsson, Ásgerður Einarsdóttir og María Leifsdóttir Skrifað af Gísli Rúnar 29.11.2011 21:14Nýr getraunaleikur KFMeistaraflokkur KF er að fara af stað með skemmtilegan getraunarleik sem allir geta tekið þátt í. Tippað er á leiki úr enska- og evrópuboltanum. Leikurinn virkar þannig að aðilar tippa á leiki sem verða á tímabilinu frá 9. desember til 2. janúar. samtals 15 leikir. Þátttökugjald er kr. 1.500.- 1.sæti: 25.000 krónur Ef þátttakandi er með alla leiki rétta eru verðlaunin 50.000 + 1.vinningur samtals 75.000 krónur. Ef fleiri en einn eru með alla leiki rétta er einnig dregið um sigurvegara. Ef einhverjar spurningar vakna um leikinn þá endilega hafið samband í síma 6605357 Þorri / 865-2325 Heiðar /Grétar 8916399 Skrifað af Gísli Rúnar 08.11.2011 23:29UÍF boðar er til formannafundarÁ heimasíðu UÍF er boðað er til formannafundar 9. nóvember nk. kl. 18:30 í UÍÓ húsinu, Ólafsfirði. Skrifað af Gísli Rúnar Flettingar í dag: 379 Gestir í dag: 123 Flettingar í gær: 1228 Gestir í gær: 347 Samtals flettingar: 800596 Samtals gestir: 160842 Tölur uppfærðar: 8.2.2012 13:36:25 |
Vafraðu umHöfundur síðu Nafn: Gísli Rúnar GylfasonFarsími: 863-4369Tölvupóstfang: gislirunar4@gmail.comHeimilisfang: Hlíðarvegur 8Staðsetning: Ólafsfjörður - hvað annað!Um: áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.TenglarEldra efni
|