|
625.is Ólafsfjörður í nærmynd |
|
Flokkur: Aðsent01.02.2012 20:59Aðalfundur Rauðakross deildar ÓlafsfjarðarAðalfundur Rauðakross deildar Ólafsfjarðar verður haldinn í Rauðakrosshúsinu Aðalgötu 1 nh. fimmtudaginn 9. febrúar klukkan 20:00 Dagskrá: Venjubundin aðalfundarstörf Félagsmenn og aðrir venunnarar velkomnir. Stjórn Ólafsfjarðardeildar Skrifað af Gísli Rúnar 01.02.2012 12:55Námskeið í hestanuddiHelgina 25. - 26. febrúar næstkomandi á Siglufirði, ef næg þátttaka fæst. Námskeiðið stendur yfir frá kl. 9 -16 á laugardeginum, með bóklegum tíma og byrjar kl. 10 á sunnudeginum með verklegum tíma. Námskeiðið kostar kr. 19.200 og lágmarksfjöldi eru 6 nemendur. Greiða þarf staðfestingargjald kr. 6.000 við skráningu. Skráning og allar upplýsingar eru í síma 861-6727 eða í hestanudd@hestanudd.net fyrir sunnudaginn 19. febrúar. Skrifað af Gísli Rúnar 31.01.2012 23:551X2 Getraunaleikur KF í ÓlafsfirðiGetraunaleikur Knattspyrnufélags Fjallabyggðar er að byrja á laugardaginn (4.feb). Nú er um að gera að taka þátt í skemmtilegum leik. Vinningar veittir fyrir 3 efstu sætin í riðlinum. Liðaskráningar á kf@kfbolti.is eða í síma 865 2325 (Heiðar) eða 660 4760 (Þorri). Þátttökugjald er 5.000 kr. á hvert lið. Skrifstofan verður opin milli kl.12-14 á laugardögum. Frekari upplýsingar um leikinn má finna hér: http://kfbolti.is/frettir/getraunaleikurinn_hefst_aftur_laugardaginn_4feb Skrifað af Gísli Rúnar 31.01.2012 23:54KF réð ekki við KA-menn á NorðurlandsmótinuKF og KA áttust við á Norðurlandsmótinu s.l. laugardag en keppt var í Boganum á Akureyri. Áhorfendur voru 65 og gerði Þórður Birgisson þrennu fyrir KF. Leikskýrslu KSÍ má sjáhér. KF tefldi fram þremur Ungverjum sem eru til reynslu hjá félaginu. Fyrsta markið kom eftir aukaspyrnu af vinstri kanti, boltinn var sendur inná teiginn þar sem Elmar Dan var fyrstur á boltann og kom honum í netið. Seinni hálfleikur byrjaði af sama krafti og fyrri hálfleikur. KF menn fengu víti á 49. mín er leikmaður þeirra var að skjóta að marki þegar á honum var brotið. Þórður Birgisson tók vítið, sendi Sandor í rangt horn og skoraði örugglega. Áfram hélt baráttan og KA með yfirhöndina. Á 81. mín átti Gunnar Valur góðan skalla að marki en naumlega framhjá. Stuttu síðar fékk KA aukaspyrnu rétt fyrir utan teig, Jóhann Helgason þrumaði þá boltanum í markmannshornið og í netinu lá hann. Glæsilegt mark hjá Jóhanni. Í uppbótartíma gerðust hlutirnir hratt, fyrst skoraði Hallgrímur Mar glæsilegt mark með föstu skoti uppí samskeytinn. KF menn gáfust ekki upp og fengu víti stuttu síðar en þá varði Jóhann Helgason með hendi innan teigs og fékk gult spjald fyrir. Jóhann hafði fengið spjald fyrr í leiknum fyrir kjaft og var hann því sendur í bað. Stuttu síðar kláraði Bjarki Baldvinsson vel færi inná markteig og gulltryggði sigur KA manna. Mikil barátta var í leikmönnum allan leikinn en KA menn fengu fimm gul spjöld fyrir kjaft en KF tvö. KF 3-5 KA Skrifað af Gísli Rúnar 19.01.2012 23:25Snjór um alla veröld- frítt í fjalliðSkíðafélags Ólafsfjarðra býður öllum frítt á skíðasvæðið Tindaöxl sunnudaginn 22. janúar í tilefni af verkefninu "snjór um víða veröld". Hvetjum fjölskyldur til að mæta saman á skíðinmeð góða skapið, og gera sér góðan dag. Skrifað af Gísli Rúnar 14.01.2012 22:26Þorrablót KKSNú er um að gera að taka daginn frá því hið árlega KKS Þorrablót verður í Íþróttahúsinu á Siglufirði laugardaginn 18. febrúar 2012. Þetta er fimmta skiptið sem KKS þorrablót er haldið og hefur það heppnast mjög vel, maturinn einstaklega góður, sem og skemmtiatriðin. Nánari upplýsingar verða birtar fljótlega á heimasíðu KKS, www.kks.is Skrifað af Gísli Rúnar 12.01.2012 11:16Breytingar í Símaskrá 2012 fyrir ÓlafsfjörðKnattspyrnufélag Fjallabyggðar óskar eftir breytingum í símaskránna sem síðast kom út árið 2008. Stefnt er að útgáfu fyrir janúarlok. Tekið er við tilkynningum á kf@kfbolti.is Skrifað af Gísli Rúnar 09.01.2012 23:32Zumba námskeiðZumba Fitness námskeið verður haldið í Ólafsfirði helgina 20.-22. janúar næstkomandi. Einföld spor, mikil brennsla, skemmtileg tónlist og frábær félagsskapur. Námskeiðið verður haldið í íþróttahúsinu. Tímarnir verða samkvæmt eftirfarandi stundarskrá Föstudaginn 20. Janúar kl: 18:00-19:00 Laugardaginn 21. Janúar kl: 10:00-11:00 Sunnudaginn 22. Janúar kl: 10:00-11:00 Verð fyrir námskeiðið er 4.000.- öll helgin Frekari upplýsingar og skráning í síma 8689390 eða í Email zumba-loa@visir.is Skrifað af Gísli Rúnar 05.01.2012 23:55Norðurland?smót í fótbolta að hefjastHið árlega Norðurlandsmót sem nú er kallað Hleðslumótið hefst á föstudag. Níu lið taka þátt í mótinu í ár og er þeim skipt í tvo riðla en líkt og áður fara allir leikirnir fram í Boganum. KF er í riðli með Fjarðabyggð, KA, Magna og Þór 2. Fyrsti leikur liðsins fer einmitt fram nú á Sunnudag þegar okkar strákar leika á móti Fjarðabyggð í Boganum klukkan 17:00. Skrifað af Gísli Rúnar 22.12.2011 23:01Jólamót KF - Innanhúsmót í knattspyrnuJólamót KF verður haldið föstudaginn 30.desember í Íþróttamiðstöð Fjallabyggðar á Siglufirði Hvert lið má vera skipað allt að 7 leikmönnum, 5 inná í einu keppt í 2 til 3 riðlum (fer eftir fjölda liða). Eftir riðlakeppnina verður síðan útsláttarkeppni þar sem besta liðið stendur uppi sem sigurvegari. Keppt verður bæði í karla og kvennaflokki (ef næg þáttaka fæst... koma svo stelpur) Keppnisgjald er 15.000 kr. og gildir það einnig sem aðgöngumiði á herrakvöld KF um kvöldið, þar verðlaun verða veitt fyrir keppni dagsins. Leikjaniðurröðun kemur á heimasíðu félagsins fyrir klukkan 21:00, fimmtudaginn 29. desember. Spilað er eftir innanhúsreglum KSÍ. Vegleg verðlaun eru veitt fyrir fyrstu þrjú sætin í mótinu. Nánari upplýsingar og skráning hjá Brynjari 869-8483 og Hlynur 8987093 Herrakvöldið er haldið að Hóli á Siglufirði og hefst kl.20:00. Miðaverð er kr.2.000. Á Herrakvöldinu verður boðið uppá léttar veitingar, fordrykkur og snittur að hætti Kobba. Skrifað af Gísli Rúnar 15.12.2011 12:44Ertu í vandræðum með jólagjöfina?Ef þú ert í vanda finnur þú lausnina í sparisjóðunum í Fjallabyggð. Gjafakort Sparisjóðsins er einföld, skemmtileg og þægileg gjöf sem gleður og hægt er að nota í verslunum um allan heim til að kaupa það sem hugurinn girnist. Þú velur upphæðina - þiggjandinn velur gjöfina. Skrifað af Gísli Rúnar 13.12.2011 00:22Ágætu íbúarAðsent: Með fyrirfram þökk og gleðilega vinaviku Skrifað af Gísli Rúnar 09.12.2011 17:02Skiptimarkaður með skíðavörurSkíðafélag Ólafsfjarðar og Skíðafélag Siglufjarðar ætla að prufa að standa fyrir markaði þar sem fólk getur komið með skíðabúnað sem ekki er þörf fyrir á heimilinu og reynt að losa sig við fyrir einhvern pening og einnig að kaupa búnað á góðu verði. Hugmyndin er að fólk mæti á svæðið og sjái sjálft um að reyna að díla með búnaðinn. Markaðurinn verður í Eining/Iðju húsinu á Siglufirði sunnudaginn 11. desember. Við hvetjum fólk eindregið til að mæta og reyna að gera góð kaup. Þetta er hugsað bæði fyrir alpagreinar- og göngubúnað, fullorðinsgræjur og barnagræjur. Skrifað af Gísli Rúnar 09.12.2011 17:00Veiðigjald útgerða hækkað úr 650 milljónum í 9 milljarða á sjö árumKarl Eskill Pálsson, sjálfstætt starfandi fjölmiðlamaður sendi okkur þess frétt um veiðigjald, en slíkt gjald hefur að sjálfsögðu áhrif á sjávarbæi eins og Ólafsförð og Siglufjörð: --- Veiðigjald, sem lagt er á útgerðir landsins, hefur fimmfaldast á undanförnum árum, úr 649 milljónum króna fiskveiðiárið 2005-2006 í rúmlega 3 milljarða króna fiskveiðiárið 2010-2011. Áætlað er að tekjur ríkissjóðs af veiðigjaldi á yfirstandandi fiskveiðiári hækki um 50% frá því síðasta og verði um 4,5 milljarðar króna. Þetta kemur fram í svari sjávarútvegsráðherra við fyrirspurn Einars Kristins Guðfinnsonar á Alþingi Veiðigjald á þessu fiskveiðiári hefur verið ákveðið 13,3% af framlegð útgerða. Miðað við óbreyttar forsendur um afla, framlegð og þorskígildisstuðla sem notaðar eru við útreikning á áætluðu veiðigjaldi á þessu fiskveiðiári og boðaða hækkun veiðigjaldsins upp í 27% af framlegð fyrirtækjanna má áætla að veiðigjaldið fiskveiðiárið 2012-2013 verði ríflega 9 milljarðar króna. "Þessi stórfellda gjaldtaka af útgerðunum, sem allt bendir til að muni hækka fjórtánfalt á aðeins sjö árum, kemur fyrst og fremst til með að veikja landsbyggðina, þar sem langflestar útgerðirnar eru," segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins-Gunnvarar hf. í Hnífsdal. "Um 90% allra aflaheimilda eru á landsbyggðinni, þar sem sjávarútvegurinn er víða kjölfestan í atvinnulífinu. Ég veit ekki alveg hvernig þetta rímar við áform stjórnvalda um að efla byggð í landinu en þingmenn stjórnarflokkanna geta vafalítið útskýrt þetta fyrir kjósendum," segir Einar. Skrifað af Gísli Rúnar Flettingar í dag: 379 Gestir í dag: 123 Flettingar í gær: 1228 Gestir í gær: 347 Samtals flettingar: 800596 Samtals gestir: 160842 Tölur uppfærðar: 8.2.2012 13:36:25 |
Vafraðu umHöfundur síðu Nafn: Gísli Rúnar GylfasonFarsími: 863-4369Tölvupóstfang: gislirunar4@gmail.comHeimilisfang: Hlíðarvegur 8Staðsetning: Ólafsfjörður - hvað annað!Um: áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.TenglarEldra efni
|