625.is

Ólafsfjörður í nærmynd

19.05.2012 16:05

Fugl fyrir milljón - viðtal

Hótelhaldarinn Axel Pétur Ásgeirsson var í viðtali í við síðdegisútvarpinu í gær. þar var hann að ræða um ljósmyndakeppnina "Fugl fyrir milljón".
Hér er hægt að hlusta á viðtalið.

19.05.2012 15:54

Tólf brauskráðir frá MTR

Frétt af www.mtr.is

Bjartsýni og gleði einkenndi útskriftarathöfn Menntaskólans á Tröllaskaga í Ólafsfjarðarkirkju í morgun. Tólf nemendur brautskráðust, ellefu stúdentar og fyrsti nemandinn sem lýkur námi á starfsbraut.

Alexander Magnússon, Greta Kristín Ólafsdóttir, Hafey Björg Pétursdóttir, Harpa Hrönn Harðardóttir, Kristófer Baldur Jakobsson, Lilja Rós Aradóttir, Sigurlína Káradóttir og Þórdís Arna Jakobsdóttir brautskráðust af félags- og hugvísindabraut, Brynja María Brynjarsdóttir af listabraut, Egill Örn Benediktsson af tölvunarsviði, Sigurður Hrannar Sveinsson af náttúruvísindabraut og Sveinn Þór Kjartansson af starfsbraut. Brynja María, Greta Kristín og Sigurður Hrannar hlutu verðlaun fyrir glæsilegan árangur, hvert á sinni braut. Sigurður Hrannar fékk að auki ýmis verðlaun fyrir frábæran námsárangur en hann var dúx skólans með 9,42 í meðaleinkunn.

Harpa Hrönn Harðardóttir þakkað í ávarpi nýstúdents þeim sem börðust fyrir stofnun skólans að hafa getað stundað framhaldsskólanám í heimabyggð. Hún hvatti samnemendur sína til að eyða ekki miklum tíma í að hugsa um næsta skref. Aðalmálið væri að setja sér markmið og vinna ötullega að þeim, mistök yrðu alltaf og hindranir en á því þyrfti að sigrast. Lífið væri stutt, menn ættu að nota það vel og ekki hlusta á úrtöluraddir.

Lára Stefánsdóttir, skólameistari sagði í ræðu sinni að örlög hvers nemanda í framhaldsskóla réðust fyrst og fremst af þeim ákvörðunum sem hann tæki sjálfur varðandi nám sitt. Þeir nemendur sem útskrifuðust í dag hefðu allir tekið þá ákvörðun að ljúka námi sínu. Með þeirri ákvörðun að koma í skólann hefðu örlög þeirra og hans tvinnast saman. Lára lýsti stolti sínu yfir að útskrifa þessa glæsilegu nemendur og sagði að starfsmenn skólans hlökkuðu til að fylgjast með þeim úr fjarlægð.

Hjá Jónu Vilhelmínu Héðinsdóttur, aðstoðarskólameistara kom fram að nær eitt hundrað nemendur stunduðu nám við skólann á vorönn. Þeir voru á breiðu aldursbili og kynjahlutfall var jafnt, 46 karlar en 53 konur. Starfsmenn skólans voru átján, þar af fjórtán kennarar. Jóna Vilhelmína sagði að skólinn hefði skapað sér sérstöðu á sviðið lista þar sem náðst hefði frábær árangur og sýningar á verkum nemenda vakið athygli og verið vel sóttar.


Mynd og frétt af vef Menntaskólans á Tröllaskaga: www.mtr.is

17.05.2012 20:57

Fyrsti heimaleikur KF

Þá er komið að fyrsta heimaleik KF í 2. deild árið 2012.  Andstæðingar okkar í þessum leik eru Afturelding. Aftureldingu var spá mjög góðu gengi af þjálfurum og fyrirliðum 2. deildar, og fara væntanlega upp um deild ef sú spá gengur eftir.Það verður því mjög erfiður leikur sem býður leikmanna KF í þessum leik. KF hefur þú verið mjög góðan árangur á heimavelli og hefur ekki tapað leik í Fjallabyggð mjög lengi.  Hvetjum því alla stuðningsmenn KF í fjallabyggð til að mæta á völlinn og láta vel í sér heyra.... Áfram KF

KF-Afturelding

Ólafsfjarðarvöllur
ATH. leikurinn er á Siglufirði
Laugardagur 19. maí
kl: 14:00

17.05.2012 15:23

30 ára afmæli Hornbrekku

Í dag heldur Hornbrekka upp á 30 afmæli stofnunarinnar. Kór eldri borgara söng kl. 14:00 og er gestum boðið að koma og þiggja veitingar og skoða staðinn í dag.
Við tækifærið fékk Hornbrekka höfðinglegar gjafir:
Bæjarstjórn Fjallabyggðar færði Hornbrekku gjöf að upphæð kr. 250.000 til kaupa á tölvu fyrir íbúa.

Sjómannafélag Ólafsfjarðar færði Hornbrekku gjöf að upphæð 1.000.000 til kaupa á búnaði til handa vistmönnum til að gera dvöl þeirra enn betri.

Skúli Pálsson, sem komst reyndar ekki sjálfur, sendi kveðjur og hann ásamt Kiwanisklúbnum í Ólafsfirði hafa stofnað Minningarsjóð í Nafni Ágústs Kolbeins Sigurlaugssonar. DVD mynddiskur hefur verið gefinn út með efni sem Gústi og Skúli gerðu á sínum tíma og allur ágóði af sölu disksins rennur í minningarsjóðinn. Diskurinn verður til sölu hjá Kiwanismönnum. Við tækifærið færði Jón Jóhannsson (Nonni Lóu) Hornbrekku eintak af disknum.
Myndir í myndaalbúminu


17.05.2012 15:19

Heimsókn í fjárhúsin

Félagsbúið "Sex í sveit" fékk heimsókn frá nokkrum ungum áhugasömum börnum í dag. Við kíktum við og tókum nokkrar myndir. Það er óhætt að segja að það hafi heldur betur bæst í hópinn frá því að við vorum þarna síðast. Myndir í myndaalbúmi.

16.05.2012 15:33

Viltu vera með í hreyfingahóp?

Við ætlum að mæta við íþróttamiðstöðina í Ólafsfirði á mánudögum og miðvikudögum kl. 17:17 og laugardögum kl. 9:30.

Allir geta verið með sem vilja stunda einhverskonar hreyfingu: ganga, hjóla eða skokka.
Hver og einn fer á sínum hraða. Æfingar eru í c.a. eina klukkustund.

Ekkert þátttökugjald, bara að mæta með góða skapið

Valur Hilmars og Gísli Rúnar

16.05.2012 11:43

Knattspyrnuskóli KF og Grétars Rafns

Knattspyrnufélag Fjallabyggðar og Knattspyrnuskóli Grétars Rafns Steinssonar eru komin í samstarf með fótboltaskólann sem verður haldinn í fimmta sinn nú í sumar á Siglufirði. Skráning er hafin á kf.skoli@gmail.com

Skólinn hefst mánudaginn 11. júní og lýkur föstudaginn 15. júní. Líkt og undanfarin ár verða þjálfarar frá knattspyrnuakademíunni hjá Bolton Wanderes.

Þátttökualdur í skólann hafa þeir sem fæddir eru á árinu 1994 til 2003.

Líkt og undanfarin ár verður lögð áhersla á fjölbreyttar æfingar, hollt mataræði, hvað hægt er að gera til að verða atvinnumaður í knattspyrnu og hvað þarf til. Gisting verður að Hóli fyrir þá sem það vilja meðan húsrúm leyfir. Reynt verður að ná hagstæðum samningum við veitingarhús bæjarins vegna kvöldmatar og morgunmatur á Hóli verður á kostnaðarverði.

Að sjálfsögðu verður gæsla allan tímann á Hóli. Námskeiðisgjald er 20.000 kr. og innifalið í því verður Knattspyrnuskólinn, hollur hádegismatur, fræðsla í næringarfræði, vallarnesti,frítt í sund og frábærir dagar í Siglufirði.

Skráningu lýkur föstudaginn 18 maí.

16.05.2012 11:42

Bikarleik frestað

Búið er að fresta fyrirhugðum bikarleik KF og Þórs sem átti að vera í kvöld miðvikudag, leikurinn hefur verið settur á n.k. þriðjudag, 22. maí klukkan 19:00

 
Næsti leikur hjá KF er á Laugardaginn og er fyrirhugaður á Ólafsfjarðarvelli og eru andstæðingar KF þá Afturelding, nánar að því síðar.

15.05.2012 22:28

Starf á Siglufirði

Starfsmann vantar í þjónustuver Inkasso, staðsett á Siglufirði. Um er að ræða afleysingu.

Áhugasamir hafi samband við Sólrúnu Júlíusdóttur í síma 862 6225 eða tölvupósti solrun@inkasso.is

15.05.2012 06:50

Fugl fyri milljón

Ljósmyndasamkeppnin Fugl fyrir milljón hófst í gær 14 maí og stendur til 31. ágúst nk. Áhugasamir ljósmyndarar ættu að skoða þetta tækifæri að næla sér í eina miljón fyrir góða ljósmynd. Verkefni er samstarfsverkefni Brimnes Hótels í Ólafsfirði og Rauðku á Siglufirði.
Nánar hægt að lesa um verkefnið á www.fuglfyrirmilljon.com

Verðlaunamyndin frá árinu 2010 tekin af Einari Guðmann frá Akureyri.
Myndin er af vef fugl fyrir milljón

14.05.2012 23:06

Íþróttamiðstöðvarnar

Íþróttamiðstöðvar Fjallabyggðar verða lokaðar fimmtudaginn 17.maí Uppstigningardag og sunnudaginn 27. maí Hvítasunnudag. Annan í hvítasunnu verður helgaropnun á báðum stöðum frá 14:00 - 18:00.

14.05.2012 21:17

KF-Þór í bikarkeppni KSÍ

KF spilar í annari umferð Bikarkeppni KSÍ við Þór frá Akureyri. KF sigraði Drangey sem er varalið Tindastóls nokkuð auðveldlega 5-1 fyrir rúmri viku. Andstæðingar KF í þetta skiptið verða væntanlega mun erfiðari við að eiga. Því eins og margir kannski vita fór Þór í úrslitaleik Bikarkeppni KSÍ fyrir tæpu ári síðan, þar sem þeir töpuðu nokkuð ósanngjarnt fyrir Íslandsmeisturum KR.

Leikurinn verður að öllum líkindum spilaður á Siglufjarðarvelli og hefst klukkan 20:00 á miðvikudag. Hvetjum þó fólk til að fylgjast með gæti breyst, ef veður verður mjög óhagstætt.

14.05.2012 11:13

Fjallabyggð auglýsir eftir Leikskólakennurum

Leikskóli Fjallabyggðar er staðsettur í tveimur starfsstöðvum Leikskálum á Siglufirði og Leikhólum í Ólafsfirði. Í hvoru húsi eru þrjár deildir og á báðum stöðum eru börn á aldrinum 1-6 ára

Sjá nánar um starf skólanna á heimasíðum þeirra

www.leikskolinn.is/leikskalar

www.leikskolinn.is/leikholar

Umsóknarfrestur er til 30. maí 2012

Launakjör samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Félags leikskólakennara.

Nánari upplýsingar veita Olga Gísladóttir, leikskólastjóri í síma 4649242 og Kristín María H. Karlsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri í síma 4649145,
netfang leikskoli@fjallaskolar.is


14.05.2012 10:57

Auglýst eftir aðilum til að sjá um 17. júní

Fjallabyggð auglýsir eftir aðilum til að sjá um hátíðarhöldin á 17. júní í Ólafsfirði.

Áhugasamir hafi samband við Karítas Skarphéðinsdóttur Neff, fræðslu- og menningarfulltrúa í síma 464 9100 eða á netfangið karitas@fjallabyggd.is

11.05.2012 21:03

Fyrsti deildarleikur sumarsins

KF spilar við Völsung í fyrsta deildarleik sumarsins.Leikurinn átti að spilast á Húsavík en þar sem vallaraðstæður þar eru ekki komnar í nægjanlega gott stand var leikurinn færður inní Bogann. Það er mjög mikilvægt að strákarnir byrji mótið vel og því væru 3 stig vel þegin í upphafi móts. En þetta verður væntanlega mjög erfiður leikur.Töluvert er um meiðsli í liði KF, Þórður Birgisson verður ekki með vegna meiðslaog eins er spurning með Jóhann Guðbrandsson sem er tæpur,  Arnór Hallsson og Gabríel Reynissoner einnig meiddir. Leikurinn hefst klukkan 16:00 á Laugardag.
ATH þetta er heimaleikur Völsungs þannig að árskort gilda ekki á þennan leik. Hvetjum alla stuðningsmenn KF til að mæta og hvetja okkar stráka.
ÁFRAM KF

Flettingar í dag: 1571
Gestir í dag: 229
Flettingar í gær: 1023
Gestir í gær: 186
Samtals flettingar: 901520
Samtals gestir: 181134
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 19:30:28

Höfundur síðu

Nafn:

Gísli Rúnar Gylfason

Farsími:

863-4369

Heimilisfang:

Hlíðarvegur 8

Staðsetning:

Ólafsfjörður - hvað annað!

Um:

áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.

Tenglar